fbpx
Mánudagur 23.febrúar 2026
Eyjan

Ou sont les neiges d’antan

Egill Helgason
Laugardaginn 26. janúar 2008 15:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

revolution1918.JPG

Greint er frá því að síðasti þýski hermaðurinn sem vitað er að barðist í fyrri heimstyrjöldinni sé látinn. Allir sem muna þessa atburði eru að hverfa. Þá rifjast það upp fyrir mér að stuttu eftir aldamótin hitti ég þýska konu í Reykjavík sem mundi eitt og annað merkilegt. Hún hét Liselotte Guðjónsson, var ekkja Odds Guðjónssonar sem var diplómati í íslensku utanríkisþjónustunni.

Liselotte var þá komin á tíræðisaldur en var ótrúlega hress. Hún var frá Kiel, hafnarborginni við Eystrasalt; mundi ekki bara eftir fyrri heimstyrjöldinni heldur líka eftir byltingunni 1918 en þá tóku sjóliðarnir í flotanum í Kiel völdin, drápu offísera og vildu lýsa yfir ráðstjórn. Hún sagði mér frá óttanum sem þá ríkti í borginni.

Svo mundi hún líka eftir því hvernig Hitler tók völdin, hvernig fólki var smalað á kjörstað til að kjósa nasistaforingjann.

Ég hafði samband við sagnfræðinga sem ég þekki og benti þeim á að taka viðtöl við Liselotte. Þó ekki væri nema til að halda frásögn hennar til haga. Sjálfur þóttist ég vera of upptekinn. Ég veit ekki hvort nokkur gerði það. En hún hafði frá mörgu að segja þessi gamla kona – hafði líka ásamt sendiherranum manni sínum hitt pótintáta eins og Leonid Brésnev, Ceausescu Rúmeníuforseta og Todor Zhivkov, leiðtoga Búlgaríu á kommmúnistatímanum.

Ég fylgdist ekki með en mér skilst að hún hafi dáið fyrir fáum árum.

Svona fellur allt í gleymskunnar dá, enginn er til frásagnar lengur og ekkert eftir nema sögubækur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?