fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Eyjan

Dúi og Benni grís

Egill Helgason
Fimmtudaginn 13. mars 2008 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar um sænska barnabókahöfunda. Astrid Lindgren er vissulega meistari, en ég veit ekki með Gunnillu Bergström. Sumar af Einars Áskels bókunum eru óttaleg þvæla, eiginlega algjör raun að lesa þær fyrir börn. Ég undanskil þó bókina þar sem Einar Áskell vill ekki fara að sofa. Hún er ansi glúrin.

Einn er sá sænskur barnabókahöfundur sem er alveg óþekktur á Íslandi. Hún heitir Babro Lindgren (veit ekki hvort hún er skyld Astrid). Meistaraverk hennar eru bækur um lítinn dreng sem heitir Max á sænsku. Ein þessara bóka var þýdd á íslensku – af Vilborgu Dagbjartsdóttur – en þar var strákur kallaður Dúi.

Dúi er gallagripur. Skemmtilega frakkur, eigingjarn, stundum huglaus, já afar mannlegur; hann er ennþá með bleyju, snuð og bangsa – það er hægt að lesa hann fyrir börn alveg niður í eins árs aldur.

29658535_o_1.jpg

Aðrar bækur eftir B. Lindgren fjalla um grísinn Benna. Engin þeirra hefur komið út á íslensku, en þær eru ekki síður fyndnar. Benni flytur að heiman þegar hann er búinn að fá nóg af hreinlætisæði móður sinnar. Vill fá að setjast að í pylsuvagni. Í annarri bók stelur hann snuði af litla bróður sínum; svo koma hrekkjusvín og vilja taka af honum snuðið.

1890609408benny.jpg

Báðir þessir bókaflokkar eru hrein snilld. Ég hef þýtt þá beint af blaðsíðunni fyrir Kára, en bíð eftir íslenskum útgáfum. Væri nær að koma þessu á prent en til dæmis hinum þrautleiðinlegu og einkennilega fantasíulausu bókum um herramennina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu