
Kiljan í kvöld verður að nokkru leyti helguð Þórbergi Þórðarsyni en í dag eru liðin 120 ár frá fæðingu ofvitans úr Suðursveit og af Skólavörðustíg. Matthías Johannessen og Vilborg Dagbjartsdóttir koma í þáttinn og segja frá kynnum sínum af Þórbergi.
Fjallað verður um annan jöfur íslenskra bókmennta, Gunnar Gunnarsson, og þá einkum í tengslum við kvikmynd sem gerð var eftir Sögu Borgarættarinnar árið 1919.
Þriðji jöfurinn kemur svo við sögu, en það er Þorsteinn frá Hamri sem verður sjötugur 15. mars. Hjalti Rögnvaldsson leikari ætlar af þessu tilefni að flytja ljóð eftir Þorstein í Iðnó. Hjalti er einn besti upplesari sem sögur fara af.
Kolbrún og Páll fjalla um vinsælar skáldsögur sem koma úr hinum íslamska heimi og hafa náð metsölu: Þúsund bjartar sólir, Flugdrekahlauparann, Jacobean bygginguna og Í landi kvenna.
Bragi er líka á sínum stað og segir frá merkum menningartímaritum.