
Síðunni barst bréf frá kunningja úr miðbænum í Reykjavík, Hilmari Þór Björnssyni arkitekt. Efni þess er vissulega allrar athygli vert:
„Sæll Egill.
Ég er tryggur lesandi þinn og finn oft þörf til að tjá mig um þau málefni sem þú leggur upp með í skrifum þínum. Og hef stundum gert það.
Ég var að lesa pistil þinn um Viðey.
Eftir samkeppnina um Vatsmýrina hafa komið upp efasemdir í mínum huga varðandi flugvöllinn. Hann þekur aðeins 7-8% af landrými borgarinnar vestan Elliðaáa. Viðey er stærri en flugvallarsvæðið og er mikið betur fallin sem íbúðasvæði en Vatnsmýrin. Eigum við ekki bara að halda flugvellinum á sínum stað Kannski þrengja svoldið að honum með HR og HÍ og skyldri starfssemi. Færa kennsluflugið annað og gera flugvöllinn svona nettari og umhverfisvænni með hávaðatakmörkunum og þ.h. Og koma svo þessari 15-25 þús manna byggð sem þar er gert ráð fyrir með þéttingu byggðar vestan Elliðaáa og svo 20 þúsund manna byggð til viðbótar í Viðey. Alls milli 35 og 40 þúsund manna byggð sem er sennilega nægjanlegt um alla framtíð(!).
Það er hægt að gera með þrem samvirkandi aðgerðum:
Leyfa fjölgun íbúða á vestan Elliðaáa án þess að krafa sé gerð um samsvarandi fjölgun bílastæða. Þetta er lykilatriði því einkabílar eru ekki samgöngutæki í borgum. (Lítum bara á London, París, Kaupmannahöfn, New York, Tokyo og Róm)
Hækka bílprófsaldurinn upp í 19 ár m.a. til þess að framhaldsskólanemar læri á strætó og að lifa í borg. (það kunna Reykvíkingar ekki).
Líta á almenningssamgöngur sem hluta af stoðkerfum borgarinnar (líkt og gatnakerfi, frárennsliskerfi o.þh.) og láta þær vera ókeypis.
Annað sem vert er að velta fyrir sér er að 3 af dómnefndarmönnum í Vatsmýrarsamkeppninni tóku virkann þátt í að hafna því að Hringbrautin væri lögð í stokk. Svo dæmir þetta sama fólk tillögu til fyrstu verðlauna þar sem einmitt er lagt til að Hringbrautin er sett í stokk. Hverskonar vitleysa er þetta? Ég velti fyrir mér hvaða mistök þetta fólk er að gera á þessari stundu þegar þau gerðu þessi hroðalegu Hringbrautarmistök fyrir bara 4 árum.
Hvar er þeirra siðferðislega og pólitíska ábyrgð? Á þetta fólk ekki bara að finna sér aðra vinnu??
Ég hef líka tekið eftir því að skipulagsmál borgarinnar hafa verið í rusli síðan uppúr 1980. En það er önnur og stærri saga.
Annars er allt gott að frétta.
Kær kveðja
Hilmar Þór“