
Eftir síðustu kosningar á Spáni töluðu margir um að Spánverjar væru að ganga erinda hryðjuverkamanna með því að kjósa Zapatero sem forsætisráðherra.
Mér fannst þetta alltaf yfirgengilegur málflutningur. Staðreyndin er sú að Jose María Aznar laug blákalt að þjóð sinni um hryðjuverkin 11. mars 2004.
Og var refsað fyrir það.
Aznar var nánasti bandamaður Bush í Evrópu, jafnvel enn nánari en Tony Blair. Þeim reyndist það báðum dýrkeypt.
Hverra erinda gengu Spánverjar þegar þeir kusu Zapatero í annað sinn í gær?
Annars hlýtur maður að fagna sigri hans – aðallega vegna þess, eins og Jón Baldvin Hannibalsson hefur lýst, að hin skelfing afturhaldssama kirkja á Spáni, beitti sér gegn honum.
Þekkjandi sögu hennar finnst manni að allt sem grafi undan henni hljóti að vera gott.