
Það hefði ekki verið amalegt á sínum tíma að fá hæstaréttardómara til að útskýra dóma sem ollu miklum deilum.
Til dæmis öryrkjadóminn og umdeildan dóm í kvótamálum.
En er það þetta sem Jón Steinar er að meina? Eða er hann bara orðinn svo leiður á fjölmiðlabindindinu?
Tek svo fram að mér finnst dómarar vera alveg úti að aka í dómum í ofbeldis-, nauðgunar- og meiðyrðamálum.
En ég er ekki viss um að ég vildi sjá þá deila um þetta í Kastljósi eða Silfri Egils. Ekki frekar en ég vildi sjá alþýðudómstóla.