
Eins og ég hef áður upplýst hefur Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins, margoft mætt með merki Evrópusambandsins í Silfur Egils.
Hann var í þættinum í dag – reyndar ekki með merkið – en upplýsti að hann vildi að Íslendingar færu í aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Sló reyndar þann fyrirvara – sem ætti að þykja sjálfsagður – að ef ekki náist nógu góður samningur muni hann greiða atkvæði gegn honum.
Á sama tíma les maður þessi ósköp eftir ungan mann sem titlar sig formann Félags ungra frjálslyndra. Undir fyrirsögninni: