
Í Kiljunni í kvöld verður sérstaklega fjallað um rithöfundinn Steinar Sigurjónsson.
Steinar hefði orðið áttræður 9. mars en hann lést 1992. Á sama tíma er að koma út hjá Ormstungu heildarútgáfa verka hans, safn um tuttugu bóka.
Steinar átti heldur slarksama og erfiða ævi, en hann var stórmerkilegur rithöfundur af sem lagði líf og sál í verk sín.
Annað meginefni þáttarins er hinn vinsæli bókamarkaður sem nú stendur yfir í Kringlunni. Í tilefni af honum keppa Kolbrún og Páll í bókmenntasmekk.