
Ég hef ferðast víða um lönd. Á ferðalögum finnur maður að það eru forréttindi að vera frá Íslandi. Alls staðar er manni vel tekið. Fólk veit kannski ekki mikið um landið, en það er yfirleitt áhugasamt og velviljað í garð þess. Fólk frá sumum löndum þarf sífellt að biðja afsökunar á tilveru sinni.
En Ísland hefur góða ímynd. Ég hef aldrei fundið fyrir öðru.
Því er skrítið að lesa að í fjármálaheiminum ríki almenn óvild – general dislike – í garð Íslands.
Hvað hafa íslenskir fjármálamenn gert til að verðskulda þetta – eða er þetta kannski bara hrein ímyndun?