
Fyrst menn eru að deila um Hallargarðinn, þá legg ég til að hann verði endurgerður í upprunalegri mynd.
Með gosbrunninum góða sem var þar einu sinni, fullum af börnum að sulla og busla.
En hvernig er það með auðmenn – eru þeir svona latir að ganga. Þarf virkilega að leggja akveg gegnum garðinn til að þeir komist að slotinu. Geta þeir ekki labbað þessa tuttugu metra eins og aðrir?