
Yfir 900 manns á menningarhátíð í Brussel segir á vef Viðskiptablaðsins. Svo rýnir maður í myndirnar og sér að þetta eru fyrst og fremst kunnugleg andlit ofan af Íslandi.
Hefði ekki verið nær að halda hátíðina á Ölstofunni?
Annars minna svona hátíðir mig alltaf á þegar ég var í flugvél á leið til Lundúna um árið. Þá var einhver svona menningarkynning í gangi. Ég leit í kringum mig í flugvélinni og varð allt í einu mjög paranoid:
Ég sá að ég var eini farþeginn í vélinni sem hafði borgað miðann sjálfur.
Það liggur við að maður fagni yfirlýsingu borgarstjórans í Reykjavík, þótt hún sé að sönnu dálítið sjálfhverf:
„Borgarstjóri vill ítreka mikilvægi þess að kjörnir fulltrúar borgarinnar sýni ráðdeild og aðhald í fjármálum borgarinnar. Borgarstjóri hefur verið í þjónustu borgarbúa sem kjörinn fulltrúi í 18 ár, nú síðast sem borgarstjóri. Allan tímann hefur hann lagt sérstaka áherslu á aðhald og ráðdeild við ráðstöfun almannafjár í þágu kjörinna fulltrúa borgarinnar og vitna útgjöld vegna ferðakostnaðar hans, dagpeninga og annars kostnaðar um það.„