
Þetta er hárrétt hjá Óskari. Afleiðing stefnunnar/stefnuleysisins í skipulagsmálum Laugavegarins er sú að allt er í uppnámi. Fjöldi gamalla húsa við götunna stendur auður og grotnar niður. Eigendur þeirra vita ekki hvort þeir geti hróflað við þeim eða hvort þeir eigi að bíða eftir því að borgin kaupi eignirnar á ofurverði.
Það er hryggilegt að sjá svona rugl.