
Ég held að það sé víst að hér munu eiga sér stað miklar iðnaðarframkvæmdir á næstu árum. Það verður reist álver á Bakka við Húsavík og í Helguvík. Svo mun vonandi rísa netþjónabú á Miðnesheiði – það er orkufrek starfsemi.
Orkan mun meðal annars koma af Hellisheiði og úr nýrri virkjun í Þjórsá. Ég hygg að mikill meirihluti þjóðarinnar verði hlynntur þessum framkvæmdum. Nú þegar kemur í ljós að bankaútrásin var bóla gerbreytast viðhorfin. Áhrifin sem Draumalandið hafði dvína hratt.
Hugmyndirnar um að gera eitthvað annað virðast heldur ekki vera betri en þessi hérna – heilsuhótel. Í sömu tillögum er talað um sjóstangveiði.
Þá er spurning: hversu harðir ætla umhverfisverndarsinnar að vera í andstöðu sinni – til dæmis þeir sem eru í röðum ríkisstjórnarflokksins Samfylkingar?