
Í Kiljunni í kvöld verður umfjöllun um bók Óttars Guðmundssonar þar sem skráð er saga Kleppsspítala. Það er Héðinn Unnsteinsson, merkilegur sérfræðingur í geðheilbrigðismálum sem segir skoðun sína á bókinni.
Lára Magnúsardóttir sagnfræðingur kemur í þáttinn og segir frá bók sinni sem nefnist Bannfæring og kirkjuvald á Íslandi 1275-1550. Barnabókahöfundurinn Lani Yamamoto býr í Vesturbænum í Reykjavík, skrifar bækur um ungan heimspeking sem nefnist Albert, en þær hafa verið gefnar út í fjölda landa.
Lani er gestur í þættinum.
Einnig verður fjallað um nýja bók eftir hrollvekjuhöfundinn Stephen King, en Kolbrún er talsverður aðdáandi hans.