fbpx
Mánudagur 23.febrúar 2026
Eyjan

Forystukreppa

Egill Helgason
Sunnudaginn 24. febrúar 2008 16:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Niðurstaða sjálfstæðismanna er að Vilhjálmur Þ. verður áfram valdamesti maðurinn í borginni, formaður borgarráðs og maðurinn sem heldur um taumana.

Fyrr í vikunni hélt ég að öruggt væri að Hanna Birna myndi taka við. Þetta bar reyndar öll merki hannaðrar atburðarásar – skoðanakönnun á réttum tíma, borgarstjóraefnið varð allt í einu sýnilegt.

Svo kom bakslag. Stuðningsmenn Vilhjálms – og Guðlaugs Þórs – sættu sig ekki við að Hanna tæki við. Það gerðu ekki heldur Gísli Marteinn og stuðningsmenn hans – þeir höfðu önnur áform.

Þessir hópar læstu saman klónum. Afleiðingin er sú að Vilhjálmur situr áfram; það á að ákveða seinna hver verður borgarstjóri í mars á næsta ári.

Fyrir vikið er borgarstjórnarflokkurinn algjörlega tvístraður. Svokallað lattebandalag Gísla Marteins, Hönnu Birnu og Þorbjargar Helgu er fyrir bí. Þau tvö fyrrnefndu keppa að því að verða borgarstjóri – en af hverju ætti Þorbjörg ekki líka að koma til greina?

Júlíus Vífill stefnir líka að sama marki og Vilhjálmur er varla búinn að gefast upp heldur. Svo er spurning hvort verður reynt að fá einhvern utanaðkomandi til að leysa forystukreppuna.

Þetta hlýtur að teljast vond staða fyrir bæði Sjálfstæðisflokkinn og Reykjavíkurborg. Framundan er langur tími sem mun einkennast af óvissu og innanflokksátökum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu