
Þetta er ansi athyglisverður texti eftir sævíkinginn að vestan.
Ef marka má Níels hefðum við aldrei átt að veiða loðnu í svo miklu magni:
„Vonandi að ríkistjórn auðnist að taka löngu tímabæra ákvörðun um að stöðva loðnuveiðar í eitt skipti fyrir öll eins og gert hefur verið í nánast öllum siðmentuðum löndum þar sem ábyrg umgengni um lífríki hafsins er í hávegum höfð.
Loðnuveiðar eru glæpur gagnvart öllu lífríki hafsins og fólkinu í sjávarbyggðunum.
Lífríki hafsins þarf nauðsynlega á loðnunni að halda en hún er ekki til handa gráðugum ofstækismönnum svokallaðra ofur skuldsettra brotajárns og tortíminga útgerða.“