
Þetta er býsna svæsin atlaga að Gísla Marteini frá ráðherra í ríkisstjórninni.
Er það vegna orkuútrásarinnar að Össuri er svona í nöp við Gísla?
Það leynir sér heldur ekki að Össur styður Vilhjálm Þ., Guðmund Þóroddsson og Hjörleif Kvaran – mennina sem véluðu um REI samningana.
„Eftir könnunina í kvöld er ferill Gísla Marteins í raun búinn. Hann á engan séns í leiðtogasætið, og fær að híma í nefndum fram að prófkjöri, sem hann verður varla svo vitlaus að fara í til þess eins að hrynja niður listans í stöðu hins dauða hross sem allir munu beita svipu sinni og pískum á.
Gísli Marteinn er búinn sem stjórnmálamaður af stærð, meðan Hanna Birna er að vaxa upp í verulega öflugan stjórnmálamann, og mun auðvitað taka sviðið.
Og meðan Villi þraukar sem borgarfulltrúi – sem ég vona hann geri – er útilokað að setja byssuna á Hjörleif og Guðmund, hversu hrokafullir þeir kunna að hafa verið gagnvart særðu stolti Júróvisjónstjörnurnar. Það er einfaldlega ekki hægt að reka þá ef enginn borgarfulltrúi axlar ábyrgð með svipuðum hætti og Björn Ingi, sem endurheimti æru sína.
Hinn grátlegi gamanleikur atburðarrásarinnar er sá, að maðurinn sem startaði henni og ætlaði að láta hana lyft sér til æðstu metorða í borginni – þvi auðvitað var plott Gísla Marteins að veikja Villa nóg til að hann sjálfur fengi oddvitastöðuna – liggur í pólitísku blóði sínu fyrir eigin tilverknað og á sér varla afturkvæmt hema kraftaverk gerist. Hann klúðraði fyrsta sandkassaleiknum sínum.“
Ég ætla að skjóta skildi fyrir Gísla og segja að mér finnst hann að mörgu leyti prýðilegur stjórnmálamaður. Hann er til dæmis mjög vaxandi í skipulagsmálum og hefur greinilega lært mikið í þeim málaflokki.
Og er loku fyrir það skotið að Gísli hafi haft einhverja sannfæringu í REI málinu – aðra en að fella Vilhjálm?