
Eins og sjá má á Moggablogginu vekja yfirlýsingar Björgvins G. Sigurðssonar um Evrópusambandið nánast sálsýkisleg viðbrögð.
Hann er kallaður föðurlandssvikari.
Fólk virðist ekki skilja að við erum nú þegar hálf – og líklega meira en það – inni í Evrópusambandinu í gegnum aðildina að EES.
Að fullveldisframsalið er löngu orðið svo mikið að nær örugglega er um brot á stjórnarskrá að ræða.
Að við tökum við lögum og reglugerðum frá ESB án þess að hafa nokkuð um þær að segja.
Úr skrifunum má lesa að Evrópusambandið sé nánast veldi hins illa.
Samt hefur það átt stóran þátt í að tryggja lengsta skeið friðar- og velmegunar sem Evrópa hefur nokkurn tíma þekkt.
Hin nýfrjálsu ríki Austur-Evrópu keppast við að uppfylla skilyrði aðildar.
Og ekki verður maður var við að fólk þjáist af ófrelsi á Spáni, Írlandi eða Finnlandi.
En mörgum virðist fyrirmunað að ræða um ESB án þess að byrja að froðufella.