fbpx
Mánudagur 23.febrúar 2026
Eyjan

Enska knattspyrnan á leið til Dubai

Egill Helgason
Þriðjudaginn 19. febrúar 2008 13:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

617tru-l.jpg

Ætli ég sé ekki af sirkabát fyrstu kynslóðinni á Íslandi sem fór að fylgjast að ráði með enska fótboltanum? Ég man eftir því þegar Sigurður Sigurðsson var með þætti um ensku knattspyrnuna á laugardögum í sjónvarpinu. Svo tók Ómar Ragnarsson við og síðar Bjarni Felixson.

Fyrstu beinu útsendingarnar frá enska boltanum voru ekki fyrr en í kringum 1980. Þá var Liverpool langbesta liðið. Ekki skrítið að margir fóru að halda með því.

Annars minnir mig að flestir jafnaldrar mínir hafi haldið með Manchester United. Það var aðallega vegna Evrópumeistaratitilsins sem United vann 1968 – og auðvitað Georges Best. Arsenal átti geysilega flott lið sem varð bæði deildar- og bikarmeistari 1971. Þá hneigðist ég til að halda með þeim stuttan tíma.

Strákar sem voru aðeins yngri en ég héldu hins vegar margir með Leeds sem átti gullaldartíma upp úr 1970. Billy Bremner og Peter Lorimer.

En Liverpool varð mitt lið. Þeir voru frá bítlaborginni. Þeir höfðu spilað evrópuleiki gegn KR 1964 – sem ég tel mig rétt muna eftir. Og svo var liðið þeirra flott þegar maður fór að sjá beinu útsendingarnar: Kenny Dalglish, Graeme Souness, Alan Hansen, Terry McDermott og hvað þeir hétu þessir karlar. Sumir segja reyndar að þeir hefðu aldrei komist í neitt almennilegt lið í dag.

Núorðið er mér reyndar hjartanlega sama. Ég get ekki haldið með félögum sem eru í eigu auðkýfinga. Ungir fótboltamenn á Englandi virðast líka vera sérlega ógeðfelld manntegund – hvað varð um það sem eitt sinn var kallað íþróttandi?

Ég fór reyndar á leik í ensku deildinni um daginn, sá Arsenal leika á Emirates leikvanginum. Hreifst af því hvað liðið er léttleikandi og skemmtilegt. En það var ekki einn enskur leikmaður sem byrjaði inn á; undir lok leiksins fékk einn Englendingur að vera með – hann var áberandi lélegastur.

Þjálfarinn er franskur. Völlurinn heitir eftir flugfélagi frá Arabísku furstadæmunum. Það eru jafnvel uppi hugmyndir um að spila leiki í ensku deildinni á erlendri grund.

Keppnin getur heldur ekki talist ýkja spennandi. Það eru alltaf sömu fjögur liðin sem eru í efstu sætunum.

Af þessum sökum myndi ég hneigjast til að halda með liðum eins og Scunthorpe eða Notts County – ef ég hefði áhuga lengur. Liverpool er í eigu manna sem heita Gillette og Hicks frá Ameríku. Þeir líta á þetta eins og hvern annan bisness. Það standa vonir til að olíufurstar sem eiga miklu meiri peninga kaupi félagið og komi því loks á toppinn.

Þess er kannski ekki langt að bíða að úrslitaleikurinn í bikarkeppninni verði leikinn í Dubai. Kannski uppi á þaki einhvers háhýsisins?

*Myndin er eftir Halldór Baldursson, úr 24stundum, birt með góðfúslegu leyfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu