
Hér hlýt ég að vera ósammála mínum gamla vini Séra Baldri.
Það er alveg óskiljanlegt hvers vegna þarf að troða pólitík inn í kirkjuna. Nóg er til af öðrum stöðum fyrir hana.
Stundum finnst mér eins og prestarnir nenni ekki að tala lengur um guð og kristindóminn – jafnvel að þeir trúi ekki lengur – þá er auðveldara að tala um pólitík og kannski líklegra til vinsælda.
Baldur var prýðilegur stjórnmálaskýrandi þegar ég vann með honum á Tímanum. En ég myndi ekki fara í kirkjuna hans til að hlusta á stjórnmálaumræður.