
Fór áðan á sýninguna á Vatnsmýrartillögunum í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu.
Tillögurnar eru margvíslegar, maður vildi jafnvel geta blandað sumum þeirra saman. Sumar eru skemmtilega útópískar, aðrar praktískari eins og verðlaunatillagan sem mig grunar að hafi unnið vegna þess hversu opin og meðfærileg hún er.
Athyglisverðast var samt hversu margt fólk var á sýningunni og hvernig alls staðar voru í gangi heitar umræður um tillögurnar.
Sjá einnig hér á þessum vef.