fbpx
Mánudagur 23.febrúar 2026
Eyjan

Auðvaldið gleypir allt

Egill Helgason
Laugardaginn 16. febrúar 2008 13:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kapítalismanum er ekki fisjað saman. Hann bryður allt í sig, líka það sem á að heita andsnúið honum og gerir loks að sínu.

Þannig er Che Guevara löngu orðinn verslunarvara sem og öll mótmælatónlist 68 kynslóðarinnar, pönkið, ádeilukvikmyndir og ádeilubókmenntir.

Kapítalisminn nærist á öllu þessu með bestu lyst.

Og nú líka þessum texti Ólafs Hauks Símonarsonar sem var sérstaklega stefnt gegn neyslusamfélaginu:

Eniga – meniga
allir rövla um peninga
Súkkadí – púkkadí
kaupa meira fínerí
kaupæði – málæði
er þetta ekki brjálæði

Kvæðið er notað í auglýsingu fyrir sparisjóðinn Byr. Sum börn sem ólust upp við þetta eru hneyksluð og kannski líka foreldrar sem spiluðu lagið fyrir þau.

En flestum finnst þetta væntanleglega bara sniðugt.

Af þessu tækifæri mætti þó endurflytja barnasöguna Uppreisnina á barnaheimilinu sem vakti mikla hneykslunaröldu um líkt leyti og Ólafur Haukur gaf út sína frægu barnaplötu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Afkomandi Sigurðar Inga hjólar í Lilju rétt fyrir formannskjörið – „Hafa mistekist svona hrapallega“

Afkomandi Sigurðar Inga hjólar í Lilju rétt fyrir formannskjörið – „Hafa mistekist svona hrapallega“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Ekki lengur hægt að treysta því að stórveldi virði alþjóðalög – breytir stöðu lítilla fullvalda ríkja

Jóhann Páll Jóhannsson: Ekki lengur hægt að treysta því að stórveldi virði alþjóðalög – breytir stöðu lítilla fullvalda ríkja