
Fyrsta skrefið í verndun hússins við norðvesturhorn Austurvallar er að hætta að kalla það Nasa.
Nasa er nafn á bandarísku geimferðastofnuninni.
Þetta hús hét lengi Sjálfstæðishúsið og svo var það kallað Sigtún.
Það gekk reyndar í gegnum niðurlægingarskeið, þá var það múrhúðað og í því var mötuneyti Landsímans.
Áður hafði starfað þarna skemmtistaður en reksturinn var mjög brokkgengur.
Það eru varla nema tíu ár síðan húsið var gert upp í núverandi mynd og er að sönnu bæjarprýði.