
Geirsgatan hefur verið einhvers konar heilög kýr í borgarkerfinu. Það hefur ekki mátt hrófla við henni. Nú virðist hafa orðið breyting þar á. Fréttablaðið hefur það eftir Gísla Marteini Baldurssyni í morgun að vilji sé til að setja Geirsgötuna í göng.
Þetta breytir öllu um umhverfi tónlistarhússins og aðkomuna að því. Ég er ekki viss um að borgarbúar geri sér grein fyrir því hversu stórt flæmi stendur þarna autt og engum til yndisauka.
Andri Snær Magnason var að pæla í því fyrir nokkrum árum hvernig við hefðum farið með neðanverðan Arnarhólinn og höfnina. Sjá hér.
Svo sé ég hérna að a.m.k. tveir meðlimir VG eru ekki hrifnir. Ég sem hélt að þeir væru svo feikilegir umhverfissinnar.