
Þegar skopmyndamálið mikla kom upp vakti athygli hversu mikið var brennt af dönskum fánum í löndum þar sem „blossuðu upp“ mótmæli.
Margir furðuðu sig á því að íbúar Palestínu, Sýrlands eða Pakistans ættu slíkar birgðir af dönskum fánum.
Á morgun birta dönsku blöðin eina skopmyndanna í samstöðuskyni við teiknarann Kurt Westergaard en komist hefur upp um samsæri um að ráða hann af dögum.
Ætli þeir séu búnir að endurnýja birgðirnar af dönskum fánum í ríkjum íslams?