fbpx
Mánudagur 23.febrúar 2026
Eyjan

Erkifífl

Egill Helgason
Laugardaginn 9. febrúar 2008 21:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

rowan-williams_1_.jpg

Erkibiskupinn af Kantaraborg sagði óhjákvæmilegt að sharialög myndu gilda í Englandi.

Fjölmiðlar í Bretlandi loga vegna þessa, kirkja biskupsins hefur risið upp á móti honum.

Kannski á að þakka manninum fyrir hreinskilnina, en mörgum finnst hann samt vera kjáni.

Erkifífl.

Aðalatriðið er að það skulu gilda ein lög í landi:

Það er ekki hægt að sætta sig við fjölkvæni.

Það er ekki hægt að sætta sig við hvernig er tekið á skilnaðarmálum í sharia.

Það er ekki hægt að sætta sig við réttleysi kvenna innan þess.

Það er ekki hægt að sætta sig við nauðungarhjónabönd.

Það er ekki hægt að sætta sig við að karlaveldi fái óheft að svipta konur frelsi með því að neyða þær til að hylja sig frá hvirfli til ilja.

Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðaði árið 2004 að sharialög væru ósamrýmanleg lýðræðinu.

Það hefur komið fram shariadómstólar eru þegar farnir að starfa í Bretlandi. En það er ekki rétt að þeir fjalli bara um fjölskyldumál og deilur um peninga, heldur eru líka að koma í ljós tilvik þar sem þeir dæma í ofbeldisbrotum innan innflytjendasamfélaga.

Og þar sem glæpamennirnir hafa ekki þurft að gera annað en að greiða sekt.

Með þessu er grafið undan lögum landsins; það endar með því að samfélagið molnar í sundur.

Stefnan á að vera að minnka hlut trúarbragðanna á hinu veraldlega sviði – ekki auka hann. Það er best fyrir alla, líka þá sem trúa – og geta iðkað trú sína í friði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn

Jón Gnarr skrifar: Mýs og menn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?