
Ólafur F. segir að ekki standi til að kaupa fleiri hús við Laugaveginn.
En á Laugavegi 33-35 stendur húsalengja sem er mestanpart búið að rýma – og er eiginlega alveg tilbúin til niðurrifs.
Teikningar að því sem þar á að koma í staðinn eru miklu meira afgerandi en nokkuð sem stóð til að gera á Laugavegi 4-6. Þrjú lítil hús verða að einu mjög stóru húsi.
Framkvæmdir eiga að hefjast í maí eins og sjá má á þessum vef.
Það þarf enginn að segja mér að ekki myndist þrýstingur á að vernda „götumyndina“ eins og neðar á Laugaveginum.
Manni finnst líklegra að verði barist um hvert hús.
Hér er það sem á að koma í staðinn á Laugavegi 33-35: