
Gísli Marteinn kemur með útspil sitt um 20 þúsund manna byggð í Vatnsmýri. Ólafur borgarstjóri svarar með því að segjast ætla að „festa flugvöllinn í sessi“.
Ég sem hélt að samkomulagið í nýja meirihlutanum gengi aðallega út á að aðhafast ekki neitt í flugvallarmálinu.
Á næstunni verða birtar verðlaunatillögur úr hinni miklu Vatnsmýrarsamkeppni.
Ólafur segir beint út í viðtali við útvarpið að hann láti sér þær í léttu rúmi liggja – þær fái „lítið vægi“.
Formaður dómnefndarinnar vegna þessarar samkeppni er Hanna Birna Kristjánsdóttir, en aðrir sem í henni sitja eru meðal annars Gísli Marteinn og Dagur B.