
Mislæg gatnamót við Kringlumýrarbraut eru eitt helsta stefnumál nýs meirihluta í borgarstjórn.
Vilhjálmur Þ. nefndi gatnamótin sem ástæðu þess að Ólafur F. sprengdi gamla meirihlutann í viðtali við sjónvarpið í dag.
Ég keyri oft þarna um. Ég verð aldrei var við að það sé sérstakt vandamál að komast yfir Kringlumýrarbrautina. Sérstaklega ekki eftir að voru settar upp tvöfaldar akgreinar á beygjuljósunum.
Flöskuhálsinn er hins vegar neðar, á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar.
Það á ekki eftir að skána þótt mislæg gatnamót verði sett upp einum krossgötum ofar.
Frekar að það versni.
Þess utan: Það er ekki hægt að skipuleggja borg með það fyrir augum að allir komist leiðar sinnar í bílum án þess að verða fyrir neinum töfum. Nokkurra mínútna bið við gatnamót á háannatíma er ekki vandamál. Umferðarhnútar í Reykjavík eru pís of keik miðað við það sem gerist í alvöruborgum.