
Það má segja að Ástu Þorleifsdóttir hafi skotið upp eins og rakettu í umbrotunum í borgarstjórninni.
Fyrir nokkrum árum var Ásta í VG. Hún var svo í fjórða sæti á lista Frjálslyndra og óháðra í Reykjavík fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. Svo var hún í fyrsta sæti hjá Íslandshreyfingunni í Suðurkjördæmi í alþingiskosningunum.
Nú er hún varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur og líka komin í stjórn Faxaflóahafna, en þetta þykja hvað feitastir bitar í borgarkerfinu.
Tvö önnur nöfn vekja athygli í þessu sambandi: Jakob Frímann Magnússon situr í menningar- og ferðamálaráði á vegum Ólafs og Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, fyrrverandi framsóknarkona, er í hinu valdamikla skipulagsráði.