
Ef Ólafur F. Magnússon myndar meirihluta með Sjálfstæðisflokksins – og verður hugsanlega borgarstjóri – er spurning hvað þær geri vinkonurnar Margrét Sverrisdóttir og Guðrún Ásmundsdóttir sem voru í öðru og þriðja sæti F-listans?
Báðar fögnuðu þær ákaft tilurð meirihlutans sem nú situr – sem Ólafur F. sagði reyndar í Silfri Egils að væri myndaður að sínu frumkvæði.
Fyrst og fremst er þetta spurning um varamenn. Ef Margrét og Guðrún fylgja ekki Ólafi mun hann varla vilja fá þær inn í borgarstjórnina sem varamenn. Hann yrði semsagt dæmdur til að sitja hvern einasta fund. Það gæti verið erfitt fyrir mann sem hefur átt við heilsubrest að stríða.
Eða hvað?
Að sumu leyti finnst manni ruglið í borgarstjórn orðið slíkt að réttast væri að kjósa upp á nýtt. Meirihlutinn sem nú situr er afar veikur – og hinn nýji yrði varla ýkja sterkur heldur.