
Skrítið er að sjá vegagerðina og samgönguráðherra sem eftir að hafa grafið rándýr og fáfarin Héðinsfjarðargöng ætlar að reyna að bjóða Reykvíkingum upp á lélegasta kostinn í lagningu Sundabrautar – nokkurs konar útsöluleið.
Ómar Ragnarsson bendir á að göngin kunni að vera miklu hagkvæmari en vegagerðin lætur uppi. Þau eru líka umhverfisvæn og miklu nútímalegri en að steypa stórar bílabraut yfir sundin blá.
Borgin hefur mótað þá stefnu að vilja göng. Hún á að standa við það.