Það á ekki af greiningardeildum bankanna að ganga. Liggur við að maður sé farinn að vorkenna þeim. Ef áföllin verða fleiri gæti farið svo að þær þögnuðu alveg, þyrðu ekki lengur að tjá sig.
Síðast voru það hinar margfrægu spár um hækkun hlutabréfa á síðasta ári – allt upp í fjörutíu prósent. Nú er það krónan sem ætlar að reynast erfið viðfangs.
Fyrir fimm dögum, 11. janúar gaf greining Glitnis út spá um að krónan myndi veikjast smátt og smátt á árinu 2008. Gengisvísitalan yrði komin í sirka 125 á miðju ári og 130 í lok árs.
Á útgáfudegi spárinnar var gengisvísitalan 121,9. Núna fimm dögum síðar er hún komin í tæplega 127, fimm mánuðum á undan „áætlun“.
Hver mánuður í spá greiningardeildarinnar hefur semsagt orðið að degi.