fbpx
Laugardagur 15.nóvember 2025
Eyjan

Einar Már í Kiljunni

Egill Helgason
Þriðjudaginn 2. október 2007 11:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 breftilmariu_1.jpg

Sérstakur gestur í Kiljunni annað kvöld er Einar Már Jónsson, háskólakennari við Sorbonne í París. Einar sendi í sumar frá sér bókina Bréf til Maríu. Hún vakti mikla athygli þrátt fyrir að hún væri ekkert auglýst – seldist vel og hefur verið mjög í umræðunni. Einar Már hefur ekki áður verið í sjónvarpsviðtali.

Bréf til Maríu er fyrst og fremst ádeilurit þar sem Einar Már gerir upp við hugmyndastrauma á síðari hluta tuttugustu aldar – marxismann, strúktúralismann og ekki síst frjálshyggjuna sem hann telur að tröllríði öllu nú um stundir. Um leið er bókin skemmtilesning, skrifuð af andagift,  þar sem höfundur fer um víðan völl og beitir sínum mikla lærdómi.

Af öðru efni þáttarins má nefna umfjöllun um skáldið og utangarðsmanninn Jónas Svafár. Er það satt að hann hafi sofið í ár? Var hann alvöru skáld? Hafði hann áhrif?

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir segir frá kynnum sínum af Dostojevskí. Bragi Kristjónsson verður á sínum stað, sem og Páll Baldvin og Kolbrún Bergþórsdóttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Mbappe yfirgefur hópinn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Dagur B. Eggertsson: Krónuvextirnir eru þrefaldir á við evruvextina – hrikaleg byrði á íslensk heimili

Dagur B. Eggertsson: Krónuvextirnir eru þrefaldir á við evruvextina – hrikaleg byrði á íslensk heimili
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: „Haltu kjafti, gamla fiskibollan þín!“

Reynir Traustason: „Haltu kjafti, gamla fiskibollan þín!“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Undirhundur

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Undirhundur