Myndband sem var tekið á Prikinu, skemmtistaði í miðbæ Reykjavíkur í síðustu viku hefur farið eins og eldur í sinnu um Internetið. Á myndbandinu má sjá Hollywood-leikarann Ezra Miller taka ungan aðdáanda hálstaki og snúa niður í jörðina. Athæfi leikarans hefur verið harðlega gagnrýnt og hafa margir kallað eftir því að Hollywood úthýsi leikaranum vegna þessa. Myllumerkið ezramillerisoverparty hefur verið vinsæl merking á Twitter-færslum þar sem leikarinn er harðlega gagnrýndur og kallað er eftir því að Hollywood sniðgangi Ezra.
Fréttablaðið greindi fyrst frá málinu á fimmtudag.
Ezra Miller er kynseginn leikari sem hefur gert garðinn frægan í kvikmyndum á borð við kvikmyndirnar úr Harry-Potter heiminum, Fantastic Beasts and Where to Find them og sömuleiðis leikur hán ofurhetjuna The Flash. Eftir að myndskeiðið frá Prikinu komst í dreifingu hafa margir aðdáendur The Flash kallað eftir því að skipt verði um leikara.
Tvær fylkingar
Virðasti Internetið skipast í tvær fylkingar þegar kemur að umræddu myndskeiði. Annars vegar þeir sem telja atvikið sviðsett og hins vegar þeir sem telja atvikið raunverulegt.
Á myndbandinu sést Ezra Miller segja „Ó viltu slást? Er það það sem þú vilt?“ við unga konu sem virðist þykjast setja sig í bardagastellingar með bros á vör. Miller grípur þá í háls stúlkunnar og snýr hana niður í jörðina. Aðilinn sem tekur upp myndskeiðið heyrðist þá bregðast við og biðja leikarann að róa sig.
Miðillinn Variety fékk það staðfest að atvikið hafi átt sér stað um kvöldmatarleitið þann 1. apríl á Prikinu. En Miller mun vera fastagestur þar þegar hán er staddur hérlendis. Þeir hafa það einnig eftir ónefndum heimildarmanni að atvikið hafi átt sér stað eftir að æstur hópur aðdáenda nálgaðist leikarann með nokkrum yfirgangi. Í kjölfarið hafi leikarinn misst stjórn á skapi sínu með ofangreindum hætti.
Meðal þeirra sem hafa tjáð sig um atvikið á samfélagsmiðlum er leikarinn Diego Tinoco, sem leikur í vinsælu þáttunum On My Block. En hann sagði á Twitter:
Vá, það er bilað ómanneskjulegt að vanvirða og skaða aðdáenda með þessum hætti. Ég veit ekki baksögu málsins en ég held ég þurfi þess ekki. Fólk getur orðið svo upptekið af sjálfu sér og hégóma að þeir halda að þeir geti gert hvað sem þeim sýnist hvenær sem þeim sýnist. Til fjandans með Ezra Miller.
Dam.. insanely inhuman to disrespect and a harm a fan like that. Don’t know the whole backstory but I don’t think I have to. People get so clouded up in their heads with vanity they think they can do whatever they want to whoever they want. Fuck Ezra Miller
— Diego Tinoco (@diegotinoco) April 6, 2020
Fjölmargir fréttamiðlar hafa leitað til Ezra Miller eftir yfirlýsingu vegna málsins en engin viðbrögð fengið.
Myndbandinu eytt
Myndbandið er sagt hafa birst fyrst á afþreyingarmiðlinum Reddit. Notandinn sem hlóð því upp kvaðst vera eigandi upptökunnar. Í athugasemdum greindi hann svo frá atvikum að leikarinn hafi sýnt stúlkunni fjöldann allan af örum sem hán hafi fengið eftir slagsmál og hún hafi þá sagt í gríni að hún gæti vel haft betur í slagsmálum við hán. Í kjölfarið hafi umrætt atvik átt sér stað. Umræddri færslu hefur nú verið eytt – án útskýringa, en ekki áður en af því var tekið afrit.
Í öðrum tilvikum er greint frá því að myndbandið hafi verið birt á Twitter, en sömuleiðis eytt þaðan af notandanum sem deildi því þar upphaflega. Um er að ræða konu sem kveðst hafa tekið myndbandið. Þar segir hún „Okey ég ætla að afhjúpa Ezra Miller því hán rétt í þessu réðist á vinkonu mína á barnum eftir að hún skoraði í gríni á hán í slag. Hán tók þessu alltof alvarlega og tók hana hálstaki og skellti henni í jörðina. Þetta er ekki í lagi.
Bætti hún svo við að eftir að Ezra var dreginn af stúlkunni þá hafi hán hrækt bæði á bróður hennar og starfsmenn Priksins. Í kjölfarið eyddi viðkomandi út myndbandinu og kveðst hafa gert slíkt sökum þess að aðili sem sést á myndskeiðinu hafi beðið hana um það. Á twitter reikningi viðkomandi má sjá töluvert áreiti frá aðdáendum.
I have rewatched this video of Ezra Miller choking a woman like 50x lmfao this is y’all tone deaf cop sympathizing—style stealing narcissistic white icon? #EzraMiller pic.twitter.com/LA1PNZCIQt
— Ren(aissance) (@Hood_Vampire) April 5, 2020
Vilhelm Neto varð vitni af atvikinu
Íslenska samfélagsmiðlastjarnan Vilhelm Neto segist hafa orðið vitni af atvikinu í færslu á Twitter.
Fer út í smá stund og fyrsta sem ég sé er Ezra Miller öskrandi á alla á Prikinu.
Einn aðili sem fær ekki boð í næsta afmælið mitt.
Öskrar enginn á Prik starfsfólk nema ég og þá er það til að lýsa ást minni.
Erlendir miðlar hafa einnig haft samband við framleiðslufyrirtækin sem standa að baki væntanlegum kvikmyndum Ezra en þau hafa kosið að tjá sig ekki að svo búnu.