fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025

Bílakynlíf er algengara en þú heldur – „Það er svo spennandi því hver sem er getur séð mann“

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 3. september 2019 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hver hefur ekki mjakað sér klunnalega í aftursætin á bíl með kynlíf í huga?

Á meðan bílakynlíf er kannski algengara á unglingsárunum, þá eru sumir sem hugsa reglulega um þessa fantasíu langt inn í fullorðinsárin. 

Samkvæmt Cosmopolitan eru yfir 6.600 Bandaríkjamenn sem leita að upplýsingum um það hvernig á að stunda kynlíf í bíl í hverjum mánuði. Það eru um 80.000 manns á ári.

Þó svo að það hljómi kannski ekki mikið þá er líklegt að mun fleiri stundi þetta, þar sem þessar tölur koma einungis frá þeim sem leita að hjálp á netinu. Það eru ábyggilega margir sem stunda kynlíf í bílnum án upplýsinga frá netinu.

Tara Struyk, aðalritstjóri Kinkly, er með kenningu um það af hverju bílakynlíf sé svona algeng fantasía.

„Ég myndi segja að þetta sé tvískipt, það er bæði neyðin og áhættan.“

Tara segir það vera æsandi að geta rifið fötin af makanum þínum þegar neyðin kallar. Hvað þá á stað eins og í bílnum sem hefur lengi vel verið vinsæll staður fyrir kynlífssenur.

„Bættu við áhættunni um að sjást og þú ert komin með kynlífsfantasíu sem er bæði ástríðufull og smá kinky. Öll þessi auka spenna og adrenalín getur gert kynlífið extra kynþokkafullt.“

En hvað finnst venjulegu fólki um það að stunda kynlíf í bílnum. Cosmopolitan tók saman hvað nokkrum manneskjum finnst um það að stunda bílakynlíf.

„Ég er svo mikið fyrir bílakynlíf. Það minnir mig á skyndikynni í menntaskóla en á góðan hátt. Hræðslan við það að sjást gerir þetta extra kynþokkafullt. Það að sitja klofvega á gaurnum á meðan hann situr í aftursætinu hámarkar líka snertinguna frá húðinni á snípinn. Ég get ekki mælt nógu mikið með því.“

„Ég er fullorðin manneskja með íbúð, af hverju ætti ég að velja sjálf að ganga í gegnum þetta vesen?“

„Ég persónulega elska hugmyndina um að stunda kynlíf í bílnum. Það er kannski bara svo spennandi því hver sem er getur séð mann.“

„Bílakynlíf er glatað. Það er aldrei nógu mikið pláss. Ég var líka einu sinni stoppuð af löggunni á meðan ég var að stunda bílakynlíf og ég fékk ávítun frá henni.“

„Ég er ekkert geðveikt mikið fyrir bílakynlíf en ég hef gaman af spennunni sem fylgir munnmökum og snertingu á ferðinni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Þorsteinn spurður út í háværar sögusagnir

Þorsteinn spurður út í háværar sögusagnir
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Græðir þú á árangri landsliðsins?

Græðir þú á árangri landsliðsins?
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Segir stjórnarandstöðuna leggja fæð á Ingu Sæland og hindra framfaramál með botnlausu málþófi

Segir stjórnarandstöðuna leggja fæð á Ingu Sæland og hindra framfaramál með botnlausu málþófi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Tottenham reynir að kaupa Ganverjann

Tottenham reynir að kaupa Ganverjann
Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Orðið á götunni: Fá milljarð gefins á ári en greiða 282 milljónir í veiðigjöld

Orðið á götunni: Fá milljarð gefins á ári en greiða 282 milljónir í veiðigjöld
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.