Fjölmiðlamaðurinn Helgi Seljan kom sem stormsveipur inn í blaðamennskuna eftir stutta fjarveru og setti þjóðfélagið á annan endann með uppljóstrunum Kveiks í Samherjamálinu. En hvað ber framtíðin í skauti sér hjá Helga? DV ákvað að leggja fyrir hann tarot en lesendur eru minntir á að þeir geta sjálfir dregið sér tarotspil á vef DV.
Fyrsta spilið sem kemur upp hjá Helga er Sverðkonungur. Það táknar persónuleika Helga, sem hefur marga fjöruna sopið. Hann er einstaklega vel gefinn og vel upp alinn, þótt hann hafi, eins og flestir, misstigið sig í gegnum tíðina. Helgi er mjög uppfinningasamur og nýjungagjarn. Hann er sjálfstæður en þolir illa gagnrýni – hún sest á sálina. En vegna afburðagáfna og sköpunargáfu er Helgi mjög valdamikill maður og það skal aldrei vanmeta. Hann er metnaðargjarn og lætur ekki kaupa sig hingað eða þangað. Þetta eru miklir umbrotatímar hjá fjölmiðlamanninum því þótt hann sé hreykinn af því verki sem hefur verið unnið hjá RÚV þá þreytist sálin við mótlætið frá áhrifamönnum í samfélaginu.
Næst er það Tunglið. Í raun hefur Helgi það á tilfinningunni að hann ráði ekki við eftirköst Samherjamálsins. Það er fjarri sanni. Hann má ekki detta ofan í vonleysi heldur verður að standa í lappirnar. Tilfinningar hans eru í einni ringulreið og hann gæti fundið fyrir einmanaleika í kjölfar þessarar miklu vinnu. Einkalífið hefur setið á hakanum og hann þarf að opna hjarta sitt á ný fyrir ást og hamingju, þótt vinnan einkennist af dimmu og drunga. Helgi verður að varast að láta innra ójafnvægi og svartsýni villa honum sýn, bæði í leik og starfi. Hann þarf að opna augun, horfa í kringum sig og sjá fegurðina í litlu hlutunum því framtíðin er björt.
Loks er það spilið Breytingar. Samherjakaflinn er brátt á enda og nýr kafli við að hefjast. Umtalsverðar breytingar verða á högum Helga fyrr en síðar og eru þetta breytingar til batnaðar. Blaðamennskan togar í hann þótt hann vilji stundum henda henni út um gluggann. Hann fær nýtt og spennandi tækifæri í þessum bransa vegna uppljóstrana um Samherja. Við vinnslu þess máls hefur hann vakið heimsathygli og komið upp góðum samböndum og því verður þessi nýja vinna sem honum býðst erlendis. Um er að ræða stóran og virtan miðil sem þekktur er úti um heim allan. Hann hoppar á tækifærið eftir ígrunduð samtöl við fjölskylduna. Nú verður ekki aftur snúið. Helgi gefur fortíðina upp á bátinn og tekur framtíðinni opnum örmum.