fbpx
Mánudagur 15.desember 2025

Konan mín fékk það margsinnis í orgíu en aldrei með mér – Finnst ég misheppnaður

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 6. nóvember 2019 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þegar ég og konan mín hittum tvö önnur pör til að stunda kynlíf með þeim, þá fékk hún margsinnis fullnægingu í því sem ég get aðeins lýst sem orgíu,“ segir maður í bréfi sínu til Dear Deidre, kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun. Sjálfstraustið hans er lamað eftir orgíuna.

„Nú líður mér eins og hún hefur gert sér upp fullnægingu með mér þar sem ég hef aldrei getað gefið henni meira en eina fullnægingu í hvert skipti.“

Maðurinn er 48 ára og eiginkona hans er 46 ára. Þau kynntust eftir að hafa skilið við fyrri maka.

„Við höfum alltaf átt mjög heilbrigt ástarlíf og stundum kynlíf eins oft og við getum. En að halda því spennandi og fjölbreyttu er erfitt. Það var konan mín sem stakk upp á því að við myndum prófa „swinging.“ Ég samþykkti, en var smá efins. Við skráðum okkur á síðu til að hitta önnur pör og kynntumst tveimur frábærum pörum á okkar aldri,“ segir hann og lýsir reynslunni.

„Fyrst var þetta allt mjög vandræðalegt og skrýtið, en fljótlega urðum við öll öruggari. Við hittum sitthvort parið nokkrum sinnum áður en við hittumst öll saman. Það var nóg um fullnægingar og virtist konan mín virkilega njóta sín. En ég hef áhyggjur af því að hún hafi skemmt sér aðeins of vel því hún fékk svo margar fullnægingar.

Það hefur látið mig hugsa að öll kynferðisleg saga okkar sé lygi og hún hefur skammast sín of mikið til að segja eitthvað. Eða hún laðast ekki að mér.

Ég á núna erfitt með að afklæðast í kringum hana. Sjálfstraustið hennar jókst en mitt snarminnkaði við þetta. Hún finnur það á sér að það sé eitthvað í gangi en ég er að reyna að komast yfir þetta. Við héldum alltaf að henni skorti sjálfsöryggi en kannski er það ég sem er óöruggur en ekki hún.“

Deidre segir:

„Það kom dæld í stoltið þitt en ekki sjá þig sjálfan sem kynferðislega misheppnaðan. Það getur verið að konunni þinni fannst auðveldara að fá fullnægingu því henni leið eins og óþekkri, kynþokkafyllri konu en ekki skyldurækinni eiginkonu.

Þið eruð hamingjusöm saman og konan þín hefur ekki kvartað yfir kynlífinu ykkar. En það getur verið erfitt að halda kynlífinu spennandi í langtímasambandi. Það er best að þið hættið að blanda öðrum í kynlífið ykkar. Það sem byrjar sem eitthvað spennandi endar oftast í hörmung fyrir eitt eða bæði ykkar. Annað en fantasían, þá hefur raunveruleikinn sínar afleiðingar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Séra Örn Bárður Jónsson: Samtímamenn Jesú skrifuðu Nýja testamentið – Kóraninn meira og minna skáldskapur

Séra Örn Bárður Jónsson: Samtímamenn Jesú skrifuðu Nýja testamentið – Kóraninn meira og minna skáldskapur
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Mikil reiði eftir að hrottalegur nauðgari slapp við fangelsisvist – Einn þolandi var nær dauða en lífi

Mikil reiði eftir að hrottalegur nauðgari slapp við fangelsisvist – Einn þolandi var nær dauða en lífi
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Vilja safna fyrir launum Jesus og fá hann í janúar

Vilja safna fyrir launum Jesus og fá hann í janúar
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Eyjan
Fyrir 7 klukkutímum

Sigvaldi Einarsson skrifar: Ísland, Kínverski Drekinn og Evrópski Fíllinn – Við eigum engan annan leik í stöðunni

Sigvaldi Einarsson skrifar: Ísland, Kínverski Drekinn og Evrópski Fíllinn – Við eigum engan annan leik í stöðunni
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Líflegar umræður eftir að Stefán Máni sagði það pólitískan réttrúnað að segja „gleðilega hátíð“ – „Þetta er innflutt tuð“

Líflegar umræður eftir að Stefán Máni sagði það pólitískan réttrúnað að segja „gleðilega hátíð“ – „Þetta er innflutt tuð“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Eldri borgari ákærður fyrir vopnalagabrot

Eldri borgari ákærður fyrir vopnalagabrot
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Gefur í skyn að hann hafi íhugað sjálfsvíg í svakalegu viðtali – „Ég var á 25. hæð á hótelinu og horfði út um gluggann“

Gefur í skyn að hann hafi íhugað sjálfsvíg í svakalegu viðtali – „Ég var á 25. hæð á hótelinu og horfði út um gluggann“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.