fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Anna miður sín og biður Bryndísi afsökunar: „Var ég vondi kallinn? Lagði ég í einelti?“

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 9. október 2019 17:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Anna Claessen gróf í dag stríðsöxina og bað Bryndísi Líf afsökunar í pistli sem hún skrifaði á Vísi í dag.

Anna, framkvæmdastjóri Dans og Kúltúr, skrifaði fyrr í vikunni pistil, þar sem hún gagnrýndi áhrifavaldinn Bryndísi Líf fyrir myndir sem hún birtir á Instagram og líkti henni við klámstjörnu.

Í gærkvöldi svaraði Bryndís fyrir sig með stuttri færslu á Instagram.

Nú er Anna þó búin að fyrirgefa Bryndísi og segir að hún hafi ekki átt að taka Bryndísi svona fyrir og að hún hefði ekki átt að nafngreina hana, frekar en einhvern annan áhrifavald.

„Fannst hún og greinin hennar svo flott og viðmótið áhugavert að þess vegna notaði ég hana sem dæmi. My bad!“

Anna sagðist hafa lesið fréttaflutninginn um málið og verið í sjokki. Í pistlinum gefur Anna í skyn að hún hafi áttað sig á því að hún hafi fordæmt og brotið niður með skrifum sínum.

„Var ég vondi kallinn? Lagði ég í einelti?“

„Ég sem var lögð í einelti og vil alltaf hafa alla með og byggja aðra upp… ekki brjóta niður.“

„Ég sem starfa við danskennslu, sem skemmtikraftur og markþjálfun, starfa við að gleðja fólk.“

„Ég sem er í Dale Carnegie að segja öðrum: „Ekki fordæma”. Braut ég á einhverjum? Áts!“

Anna spyr sig þá hvað sé best að gera í aðstæðum sem þessum, þegar manni finnst maður hafa gert eitthvað vitlaust.

„Hvað gerir maður þá?

Þegar maður hefur gert eitthvað rangt

Biðjast fyrirgefningar

Sendi strax skeyti

Og biðst hér með fyrirgefningar

Ætlaði aldrei að særa neinn.“

Anna ítrekar svo hvert markmið hennar með upprunalega pistlinum hafi verið.

„Líður þeim vel sem fá ekki jafn mörg læk og vinir sínir? Jafn mörg læk og samfélagsmiðlastjörnurnar sem sýna allan sinn líkama? Hvernig myndi þér ef litla systir eða frænka myndi deila svona efni af líkama þeirra?”

„Í staðinn notaði ég íslenska fallega konu sem dæmi og var tekin fyrir það. Skiljanlega!“

„Þetta var ekki fallega gert og ég er miður mín. Bryndís á hrós skilið hvernig hún tók þessu. Takk Bryndís fyrir að sýna mér mína fordóma.“

Anna segist þó vera hrædd um yngri frænkur sínar sem gætu verið að bera líkama sína saman við glansmyndir samfélagsmiðla.

„Ég er hrædd. Hrædd um litlu frænkur mínar sjái svona, bera það saman við þeirra líkama, fari að hata hann eða fari í hina áttina og fækki fötum til þess að fleiri like. Meiri ást og stuðning. Það er hræðslan, og þannig urðu til fordómarnir.“

Anna segir að hún hafi lært sína lexíu og þakkar Bryndísi fyrir það.

„Sjáðu frekar hvað þessi hegðun er í raun og veru að segja þér um þig og þína hræðslu og farðu að vinna í því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Steinar ferðaðist með bleika ferðatösku – Er hann afkastamikill raðmorðingi?

Steinar ferðaðist með bleika ferðatösku – Er hann afkastamikill raðmorðingi?
EyjanFastir pennar
Fyrir 15 klukkutímum

Björn Jón skrifar: Til hvers að læra tungumál?

Björn Jón skrifar: Til hvers að læra tungumál?
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.