fbpx
Mánudagur 30.júní 2025

Flugfreyja deilir leyndamálum sem flugfélögin segja þér ekki: Ekki panta þér kaffi um borð í flugvél

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 3. október 2019 11:30

Ekkert áfengi í boði.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Inside Edition ræddi við flugfreyjuna Jamilu Hardwick sem vinnur hjá kvikmyndastúdíóinu Air Hollywood. Hún deilir nokkrum leyndarmálum sem flugfélögin vilja ekki segja þér.

Eitt af því er að hún mælir ekki með því að farþegar panti sér kaffi eða aðra heita drykki. Hún segir að hún og samstarfsfélagar hennar panti sér aldrei heita drykki þegar þau fljúga.

„Málið með kaffi og te er að leiðslurnar eru mjög sjaldan þrifnar,“ segir Jamila. En vatn úr vatnsleiðslum flugvélarinnar er notað fyrir heita drykki.

Samkvæmt Inside Edition þurfa flugfélög aðeins að sótthreinsa leiðslurnar fjórum sinnum á ári.

Annað sem Jamila nefnir er að farþegar ættu ekki að biðja flugfreyjur um að hjálpa sér að ganga frá handfarangrinum sínum, því að hennar sögn fá flugfreyjur ekki greitt fyrr en flugvélin leggur af stað og eru þær því ekki tryggðar ef þær meiða sig við að ganga frá farangrinum.

Hún fer einnig yfir óhreinlæti um borð í flugvélum og hvetur fólk til að sótthreinsa borðið fyrir framan sig þegar það kemur í flugvél.

Horfðu á myndbandið hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Kemur fram á lokatónleikum Black Sabbath þrátt fyrir að hafa verið skotinn margsinnis – Árásarmennirnir gómaðir

Kemur fram á lokatónleikum Black Sabbath þrátt fyrir að hafa verið skotinn margsinnis – Árásarmennirnir gómaðir
Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

United staðfestir ráðningu á Jonny Evans

United staðfestir ráðningu á Jonny Evans
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Harmleikur á Englandi: 12 ára drengur látinn eftir samfélagsmiðlaáskorun

Harmleikur á Englandi: 12 ára drengur látinn eftir samfélagsmiðlaáskorun

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.