fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Áhorfendur orðlausir – Ritstjóri yfir heilsutímariti hvatti til fitusmánunar í beinni

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 16. september 2019 20:30

Danielle Levy.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ritstjóri heilsutímaritsins, Muscle and Fitness, segir að það ætti að fitusmána fólk því það lætur þau „loka munninum og hætta að borða yfir sig.“

Danielle Levy var í spjallþættinum Good Morning Britain í morgun og hélt því fram að það ætti að fitusmána feitt fólk til að fá þau til að grennast.

„Því meira sem við fitusmánum, því fleiri loka kjaftinum og hætta að borða yfir sig,“ sagði hún í þættinum.

„Ég hef fengið ótal margar reynslusögur af fólki þar sem þetta hefur virkað. „Ég var í vatnsrennibraut og ég festist og fólk hló að mér  og það var tímapunkturinn sem ég ákvað að gera eitthvað,““ sagði Danielle.

Danielle Levy var fengin í þáttinn ásamt leikaranum Christopher Biggins til að ræða um fitufordóma eftir að James Corden tók Bill Maher í gegn fyrir ummæli sín um fitusmánun.

Áhorfendur voru gjörsamlega orðlausir yfir ummælum Danielle og tóku til Twitter til að tjá sig um málið. Einn netverji sagði rök hennar vera „ógeðsleg“ og annar sagði að þetta væri „einelti.“

„Ég var fitusmánuð þegar ég var barn og allt mitt líf. Það „virkaði.“ Ég er núna deyjandi úr lystarstoli. Ég kenni konum eins og þessari ógeðslegu Danni konu, haturorðræða drepur,“ skrifaði einn netverji.

„Fitusmánun er bara einelti í öðrum búning. Það er alls ekki svarið við flóknum vanda,“ skrifaði annar. „Andstæðan er ekki að fagna offitu heldur, enginn er að „fagna“ offitu.“

Þú getur horft á allt viðtalið hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Heitar umræður um subbulegt brot Grétars – „Það er lukka fyrir Adam Ægi að standa ekki í báðar lappirnar“

Heitar umræður um subbulegt brot Grétars – „Það er lukka fyrir Adam Ægi að standa ekki í báðar lappirnar“
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Sjaldséð sjón – Börn Matthew McConaughey orðin svo stór

Sjaldséð sjón – Börn Matthew McConaughey orðin svo stór
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Rannsóknar-Ríkharð með kenningu um það hvernig komst upp um brot Búa og Ísaks – Fengu báðir þungan dóm

Rannsóknar-Ríkharð með kenningu um það hvernig komst upp um brot Búa og Ísaks – Fengu báðir þungan dóm
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Guðmundur Felix kastar inn handklæðinu

Guðmundur Felix kastar inn handklæðinu
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.