fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Kristín Lilja gekk fyrir DIOR á tískuvikunni í París: „Þetta var alveg frábær upplifun“

Aníta Estíva Harðardóttir
Fimmtudaginn 27. september 2018 12:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Lilja Sigurðardóttir laganemi og fyrirsæta gekk tískupallana fyrir DIOR á dögunum fyrir sýningu á Fasion Week í París.

„Ég var í rauninni búin að útiloka að ég myndi verða valin í sýninguna, það voru svo margar stelpur sem komu til greina. Svo fékk ég símtalið um að þau hefðu valið mig og ég var eðlilega í skýjunum en líka smá stressuð, enda um eina af stærstu sýningunum að ræða á Fashion Week,“ segir Kristín í samtali við Bleikt.

Kristín starfar sem fyrirsæta í fullu starfi ásamt því að stunda nám við lögfræði.

„Þegar ég var yngri þá hugsaði ég aldrei út í það að verða fyrirsæta í framtíðinni en svo fékk ég tækifæri að koma á samning hjá Eskimo sem er móðurskrifstofan mín. Ég fékk mörg verkefni alveg frá byrjun og fór að finnast þetta skemmtilegt og kynntist nýju fólki. Ég stefni á áframhaldandi feril í augnablikinu, vil grípa tækifærið sem er núna en svo veit maður aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér.“

Eskimo kom Kristínu á samning hjá NEXT Management Worldwide og í gegnum þá skrifstofu fór hún í prufu fyrir DIOR.

Aðspurð um upplifunina á því að fá að ganga tískusýningu fyrir svo frægt merki segir Kristín að allt stress hafi horfið daginn sem sýningin fór fram.

„Daginn fyrir sýninguna var ég ennþá að meðtaka það að ég hefði verið valin, þetta var líka fyrsta tískusýningin mín í tískuvikunni í París og allt var svolítið óraunverulegt. Daginn sem sýningin fór fram þá hvarf allt stress. Teymið baksviðs var æðislegt og allir svo almennilegir. Allur dagurinn var yndislegur og mikil spenna í loftinu, þetta var alveg frábær upplifun.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 klukkutímum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.