fbpx
Mánudagur 15.desember 2025
433Sport

Svona eru áherslur dómara fyrir komandi leiktíð

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 31. janúar 2025 15:00

Úr leik Breiðabliks og Vals í Bestu deildinni í fyrra. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhersluatriði dómaranefndar 2025

Dómaranefnd KSÍ gefur út áhersluatriði fyrir hvert keppnistímabil. Áhersluatriðin eru kynnt á sérstökum fundum sem haldnir með fulltrúum félaga fyrir hvert keppnistímabil. Á fundina eru boðaðir fulltrúar leikmanna og þjálfara frá hverju félagi og langflest félög senda sína fulltrúa á þessa fundi. Fundirnir í ár voru haldnir 28. og 30. janúar.

Áhersluatriði þessi gilda fyrir knattspyrnumót KSÍ árið 2025 og taka gildi við upphaf Lengjubikars.

Mótmæli gagnvart dómurum
• Hefur uppi mótmæli með orðum eða látæði t.d. sveiflar höndum.
• Ögrandi hegðun í garð dómara.

Dómurum ber að áminna fyrir slíka hegðun

Hópögranir eða hópast um dómarann
• Við hópögranir ber að lágmarki að sýna einum leikmanni úr hvoru liði gula spjaldið.
• Gerist leikmenn sekir um að hópast í kringum dómarann með mótmæli eða til þess að reyna að hafa áhrif á ákvörðun hans (t.d. með því að heimta gult eða rautt spjald á mótherja) ber dómaranum að áminna a.m.k. einn þeirra sem þannig haga sér (oftast þann sem hefur sig mest í frammi). Því til viðbótar ber að áminna hvern þann leikmann sem leggur á sig langa leið til þess að koma mótmælum sínum á framfæri.

Óíþróttamannsleg hegðun

T.d. leiktafir

• Sparka/kasta bolta burt eftir að leikur hefur verið stöðvaður
• Taka bolta og fara með hann
• Fara fyrir og eða hindra töku aukaspyrnu

Dómurum ber að áminna fyrir slíka hegðun

Boðvangur
Taka ber á allri ósæmilegri/óábyrgri hegðun þeirra sem eru á tæknisvæðinu. Sama hvort að um sé að ræða varamenn eða aðila úr starfsteymi liðanna. Einungis einum aðila er heimilt að standa fram í boðvangi í einu og þá einungis til að koma á framfæri leikrænum leiðbeiningum til sinna leikmanna.

Fyrirliði – Dómari samvinna. Ef markvörður liðs er fyrirliði skal liðið tilnefna leikmann fyrir leik sem á að vera í samskiptum við dómara. Tilkynna verður dómara fyrir leik hver þessi leikmaður er.

• Aðeins fyrirliða er heimilt að nálgast og vera í samskiptum við dómara. Skal hann koma fram af kurteisi og háttvísi.
• Fyrirliði ber ábyrgð á því að aðrir leikmenn liðsins virði þessa reglu og sýni dómarateyminu virðingu. Leikmenn séu ekki að hópast í kringum dómarann.
• Leikmaður annar en fyrirliðinn sem ekki fer eftir þessari reglu og nálgast dómara með mótmælum eða sýnir af sér óíþróttamannslega hegðun skal áminntur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Sjáðu myndbandið sem Salah deildi eftir leikinn á Anfield í gær – Var hann að kveðja?

Sjáðu myndbandið sem Salah deildi eftir leikinn á Anfield í gær – Var hann að kveðja?
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Vilja kaupa miðjumann Everton í janúar

Vilja kaupa miðjumann Everton í janúar
433Sport
Í gær

Lofsyngur viðhorf Rashford – Ekki tekið ákvörðun hvort þeir kaupi hann

Lofsyngur viðhorf Rashford – Ekki tekið ákvörðun hvort þeir kaupi hann
433Sport
Í gær

Setjur fram djarfa spá um framtíð Mason Greenwood

Setjur fram djarfa spá um framtíð Mason Greenwood
433Sport
Fyrir 2 dögum

Carragher heldur áfram að skjóta fast á Salah – Segir hann ekki hafa lesið salinn

Carragher heldur áfram að skjóta fast á Salah – Segir hann ekki hafa lesið salinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stefán grínaðist með slaginn við Heimi Má – „Vona að ég þurfi nú ekki að fara að snupra þig og verða að einhverju meme-i“

Stefán grínaðist með slaginn við Heimi Má – „Vona að ég þurfi nú ekki að fara að snupra þig og verða að einhverju meme-i“