fbpx
Laugardagur 13.desember 2025
Kynning

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ

Kynningardeild DV
Miðvikudaginn 12. júní 2024 13:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bílaumboðið Hekla og handknattleiksdeild Stjörnunnar hafa undirritað tveggja ára samstarfssamning sem felur í sér að Hekla er nú einn helsti styrktaraðili deildarinnar. Með þessu er tryggt að Stjarnan og Hekla muni skína í Garðabæ, en fyrirhugað er að Hekla flytji alla starfsemi sína í bæjarfélagið innan tíðar. Samningur þessara aðila undirstrikar mikilvægi samstarfs atvinnu- og íþróttalífs þar sem hagur nærumhverfisins er hafður að leiðarljósi.

„Við erum himinlifandi með stuðning stórfyrirtækis á borð við Heklu, enda mikilvægt fyrir okkur í handboltanum að eiga í góðu samstarfi við bæjarbúa, þá sem þar starfa og búa. Við hlökkum til samstarfs með þeim næstu árin og er ég viss um að báðir aðilir eiga eftir að blómstra. Hekla mun flytja með alla starfsemi í Garðabæinn innan skamms og að þeir styrki svona myndarlega við íþróttalífið í bænum okkar er virðingavert,” segir Patrekur Jóhannesson, íþrótta- og rekstrarstjóri handknattleiksdeildar Stjörnunnar.

„Það er okkur mikið ánægjuefni að fá tækifæri til að taka þátt í starfi handknattleiksdeildar Stjörnunnar og vonumst við hjá Heklu til þess að styrkurinn nýtist í uppbyggingu handboltans í Garðabæ. Það er virkilega gaman að finna fyrir þeim krafti sem ríkir hjá forsvarsfólki handknattleiksdeildar Stjörnunnar og við höfum því fulla trú á að samstarf okkar leiði gott af sér. Það er tilhlökkun að komast í Garðabæinn og ég veit að leikgleði og metnaður beggja aðila verður leiðarljós til framtíðar,“ segir Friðbert Friðbertsson forstjóri Heklu.

Við óskum handknattleiksdeildinni og Heklu innilega til hamingju og hlökkum til þess að sjá merki beggja aðila einkenna handboltatreyjurnar næstu tvö árin.

SKÍNI STJARNAN

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
31.01.2025

Beiersdorf lyftir baráttunni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar – Sjáanleg áhrif á 5 mínútum og langtíma meðferð gegn hrukkum

Beiersdorf lyftir baráttunni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar – Sjáanleg áhrif á 5 mínútum og langtíma meðferð gegn hrukkum
Kynning
29.01.2025

Fyrirtækjaþjónusta IKEA – fagleg ráðgjöf þér að kostnaðarlausu

Fyrirtækjaþjónusta IKEA – fagleg ráðgjöf þér að kostnaðarlausu
Kynning
08.11.2024

Frumsýna Audi Q6 á morgun – Kaflaskil í hönnun rafbílsins vinsæla

Frumsýna Audi Q6 á morgun – Kaflaskil í hönnun rafbílsins vinsæla
Kynning
06.11.2024

TIME útnefnir ökumannsskilningskerfi Volvo EX90 eina af bestu uppfinningum ársins 2024

TIME útnefnir ökumannsskilningskerfi Volvo EX90 eina af bestu uppfinningum ársins 2024
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn