„Þetta er ótrúlega mikilvæg viðurkenning fyrir dóttur okkar, sem nú er orðin 15 ára gömul. Við hlógum og felldum tár hérna til skiptis þegar ég sýndi henni fréttirnar í gær,” segir Magnea Rún Magnúsdóttir.
Dóttir Magneu Rúnar varð fyrir þeirri ömurlegu reynslu að íþróttakennari á Dalvík rak henni kinnhest á skólatíma í maí árið 2021. Í kjölfarið hófst langt og strangt ferli sem hefur tekið mikið á fjölskylduna.
DV fjallaði ítarlega um málið á sínum tíma en í einfölduðu máli var kennarinn sendur í leyfi og síðar sagt upp störfum en með stuðningi Kennarasamband Íslands og Félags grunnskólanema fór viðkomandi í mál við sveitarfélagið, fékk uppsögnina dæmda ólöglega og hlaut bætur upp á 8 milljónir króna. Landsréttur sneri þeirri niðurstöðu svo við og taldi kennarann hafa framið gróft brot í starfi og að sveitarfélagið hafi verið í fullum rétti að segja kennaranum upp störfum.
Magnea Rún segir fjölskylduna og ekki síst dóttur hennar upplifa mikinn létti að réttlætinu hafi verið fullnægt enda hafi úrskurður héraðsdóms verið mikið áfall. Eftir standi þó spurningamerki um framgöngu Kennarasambands Íslands.
„Það var Kennarasambandið sem upplýsti að umrætt atvik hefði átt sér stað í Dalvíkurskóla. Þær upplýsingar höfðu verið afmáðar úr gögnum málsins,” segir Magnea Rún. Uppljóstrunin átti sér þannig stað að Kennarasambandið birti frétt um málið áður en dómur var kveðinn upp í héraði og lét þar staðsetningu málsins fylgja með. :essi uppljóstrun varð til þess að kastljósinu var varpað á dóttur Magneu Rúnar sem reyndist henni afar þungbært.
Þá hafi KÍ varið hegðun kennarans og sagt að áminning í starfi hafi verið hæfilegri niðurstaða. Magnea Rún segist vera afar ósátt við framgöngu sambandsins í málinu og að niðurstaða Landsréttar sýni svart á hvítu að forsvarsmenn KÍ þurfi að líta í eigin barm.