Í umfjöllun Live Science kemur fram að ákveðnar ástæður liggi að baki því að fólki talar í svefni.
Það að tala í svefni getur til dæmis verið merki um svefntruflanir eða aðra þætti á borð við stress eða kvíða.
En þetta getur einnig gengið í erfðir því svefntruflanir ganga í erfðir.
En algengasta ástæðan fyrir að fólk talar í svefni er að viðkomandi er á því stigi svefnsins þar sem hann er léttur. Þá er heilinn enn vakandi að hluta og á þessu stigi getur hann sent skilaboð til talvöðvanna þrátt fyrir að viðkomandi viti ekki af því.
Fólk, sem glímir við kæfisvefn, á það til að tala í svefni og þetta getur líka verið aukaverkun af notkun ákveðinna lyfja eða vegna áfengisneyslu. Þessi efni geta truflað eðlilega hringrá svefnsins og skapað ástand þar sem viðkomandi er ringlaður eða illa áttaður.
Almennt séð er það ekki alvarlegt vandamál ef fólk talar upp úr svefni en í sumum tilfellum getur það bent til alvarlegra svefntruflana.
Ef þetta gerist reglulega eða veldur svefnvanda er ráðlegt að leita til læknis.