Það eru góðar líkur á því að bakvörðurinn Kieran Tierney sé á förum frá Arsenal í sumarglugganum.
Frá þessu er greint í dag en Tierney er ekki að fá mörg tækifæri hjá Arsenal þessa dagana.
Tierney hefur spilað með þeim ensku undanfarin fjögur ár og var upphaflega mikilvægur hlekkur í liði Mikel Arteta.
Meiðsli hafa þó sett strik í reikning Tierney sem er 25 ára gamall í dag og er heill heilsu en fær lítinn spilatíma.
Samkvæmt Fabrizio eru ansi góðar líkur á að Tierney sé á förum en hann lék áður með Celtic í Skotlandi.