fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Pressan

Fullkomið eintak af fyrstu útgáfu umdeildrar bókar Kópernikusar gæti selst á 350 milljónir

Pressan
Sunnudaginn 2. apríl 2023 07:30

Sólin er miðpunktur sólkerfisins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eintak af fyrstu útgáfu af tímamótaverki Nikulásar Kópernikusar verður selt á uppboði í apríl. Í þessu verki sagði hann að jörðin snerist um sólin en ekki öfugt. Aðeins er vitað um 277 eintök af þessari bók.

Bókin heitir „De revolutionibus orbium coelestium“ og var gefin út 1543. Hún ruddi brautina fyrir vísindamenn framtíðarinnar, þar á meðal Galileo Galilei, og var upphafið að byltingu í stjörnufræði.

Live Science segir að bókin hafi verið mjög umdeild á sínum tíma því hún hafi skapað algjörlega nýtt sólmiðjulíkan af alheiminum, þar sem sólin var miðpunktur sólkerfisins og pláneturnar voru á braut um hana. Þetta nýja líkan var algjörlega á skjön við skoðun kaþólsku kirkjunnar um að jörðin væri miðpunkturinn.

Bókin var prentuð í 500 eintökum en Vatíkanið bannaði bókina fljótt því hún gekk gegn skoðunum þess. Vitað er um 277 eintök sem enn eru til. Flest á söfnum, bókasöfnum og öðrum stofnunum. Nokkur eru í eigu einkasafnara og því er fyrirhuguð sala mjög sérstök. Árið 2008 var svipað eintak selt á uppboði fyrir 2,2 milljónir dollara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni
Pressan
Fyrir 4 dögum

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin
Pressan
Fyrir 4 dögum

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hryllilegur dauðdagi Nicole Brown Simpson og Ronald Goldman

Hryllilegur dauðdagi Nicole Brown Simpson og Ronald Goldman
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sérfræðingurinn segir að þetta eigir þú að borða á kvöldin ef þig langar að byrja daginn á góðum hægðum

Sérfræðingurinn segir að þetta eigir þú að borða á kvöldin ef þig langar að byrja daginn á góðum hægðum