fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fókus

Denise Richards harðlega gagnrýnd fyrir að ætla í samstarf með dóttur sinni á OnlyFans

Fókus
Föstudaginn 8. júlí 2022 13:32

Denise RIchards og Sami Sheen. Myndir/Getty/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Denise Richards á ekki sjö dagana sæla eftir að tilkynnt var að hún ætlaði í samstarf með dóttur sinni, Sami, á OnlyFans en hana á Denise með leikaranum Charlie Sheen.

 

Sami, sem er átján ára gömul, tilkynnti á OnlyFans að hún væri að fara í samstarf með mömmu sinni sem öðlaðist frægð fyrir leik sinn í myndum á borð við Wild Things og Starship Troopers en var nú síðast í raunveruleikaþáttunum The Real Housewives of Beverley Hills.

Sjá einnig: Denise Richards byrjar á OnlyFans viku á eftir dóttur sinni

Sami skrifaði: „Eins og þið vitið er ég að fara að gera efni með mömmu minni bráðum, @deniserichards, og ef þið leggið í púkkið passa ég upp á að senda ykkur sérstakt aukaefni og myndband frá okkur báðum.“

Þessar fregnir koma í kjölfar þess að Sami tilkynnti í síðasta mánuði að hún ætlaði að fara á OnlyFans og voru skoðanir foreldra hennar á því afar skiptar.

Pabbi hennar, Charlie Sheen, var mótfallinn því en mamma hennar, Denise, hvatti hana áfram og sagðist þá einmitt mögulega ætla að stofna sinn eigin reikning á OnlyFans.

Sjá einnig: OnlyFans reikningur Denise Richards

Eftir að fregnir um samstarfið urðu opinberar hafa aðdáendur ekki sparað stóru orðin.

Einn gagnrýnandinn sagði á Instagram, þar sem Sami deildi færslu sinni: „Sem móðir tveggja dætra þá finnst mér þetta mjög truflandi. Ég elska stelpurnar mínar, en mér finnst þetta ógeðslegt.“

Annar gagnrýnandi sagði: „Ö, nei! Hver gerir svona með barninu sínu? Þetta er sjúklega óviðeigandi og viðbjóðslegt.“

Charlie Sheen hefur talað opinberlega um hversu ósáttur hann er við að Sami hafi gengið til liðs við OnlyFans og sagði við E! News: „Ég er ekki samþykkur þessu. En þar sem ég get ekki komið í veg fyrir þetta þá hvatti ég hana til að vera smekkleg og skapandi og ekki fórna heilindum sínum. Hún er 18 ára og býr hjá móður sinni. Þetta hefði ekki gerst ef hún byggi hjá mér.“

Charlie og Sami Sheen. Myndir/Getty/Instagram

Denise hefur sagt að hún hafi ekki áttað sig almennilega á þvi hvað OnlyFans var fyrst eftir að dóttir hennar opnaði þar reikning.

„Dóttir mín var gagnrýnd eftir að hún opnaði reikninginn. Ég hafði heyrt um OnlyFans en vissi ekki alveg út á hvað þetta gekk,“ sagði Denise.

„Eftir að ég fór að kynna mér þetta betur þá finnst mér að þeir sem bjuggu þetta til hafi tekið það besta frá hverjum samfélagsmiðli og sameinað á einni síðu. Við erum öll að birta myndir af okkur á sundfötunum á Instagram og ýmsum öðrum síðum og munurinn er enginn annar en að þarna áttu þitt eigið efni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kanye West ætlar í klámið

Kanye West ætlar í klámið
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda