fbpx
Sunnudagur 11.maí 2025
433Sport

Skýtur á Víkinga sem eru þegar farnir að skipuleggja hópferð – „Byrjaðir að bóka ferð til Istanbúl?“

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 22. júní 2022 15:40

Hrafnkell Helgason, til hægri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víkingur Reykjavík mun á föstudag mæta Inter Club d’Escaldes í úrslitaleik um sæti í fyrstu umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Komist liðið þangað verður Malmö andstæðingurinn.

Víkingar burstuðu Levadia Tallin, 6-1, í undanúrslitum í gærkvöldi. Það er mikil spenna í Víkinni fyrir Evrópukeppninni í ár og stefnir félagið á að blása til stuðningsmannaferðar til Malmö ef Víkingur kemst í gegnum meistarana frá Andorra á föstudag. Félagið setti eftirfarandi færslu á Facebook:

Evrópuævintýri í kortunum?
Færi sem svo að Víkingur sigri sinn annan Evrópuleik í sögu félagsins á föstudagskvöldið þegar liðið mætir Inter Club d’Escaldes frá Andorra fer Víkingur áfram í fyrstu umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu og myndi mæta stórliði Malmö frá Svíþjóð.
Fyrri leikurinn færi þá fram á Elada Stadium í Malmö þriðjudagskvöldið 5. júlí klukkan 19:00 CET og seinni leikurinn færi fram á Víkingsvelli hinn 12. júlí kl. 19:30 GMT.
Við viljum kanna áhuga á stuðningsmannaferð fyrir Víkings stuðningsmenn til Malmö ef Víkingur kemst áfram með sigri næsta föstudagskvöld.
Verðið væri líklega í kringum 150.000 kr. og innifalið í verði væri: Rúta, flug, gisting og miði á leikinn. Flogið væri út sunnudaginn 3. júlí og heim aftur snemma morguns 6. júlí
Endilega skráið ykkur hér fyrir neðan.

Hrafnkell Helgason í stjórn knattspyrnudeildar Fylkis finnst Víkingar klárlega vera að fara aðeins fram úr sér með þessu. Hann ákvað að skjóta aðeins á Víkinga á Twitter.

„Jinx? Eru Víkingar einnig byrjaðir að bóka ferð til Istanbúl í maí 2023? Vinna fyrst takk, ekki gefa Andorramönnum frekara motivation til að vinna leikinn á föstudaginn,“ skrifaði Hrafnkell. Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar á komandi leiktíð fer fram í Istanbúl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Slot reynir að róa stuðningsmenn Liverpool – ,,Við gerðum allt sem við gátum“

Slot reynir að róa stuðningsmenn Liverpool – ,,Við gerðum allt sem við gátum“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Samþykkt að 48 lið verða á HM

Samþykkt að 48 lið verða á HM
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Mjög áhyggjufullur fyrir úrslitaleik United – ,,Mér líður ekki vel“

Mjög áhyggjufullur fyrir úrslitaleik United – ,,Mér líður ekki vel“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Gömul ummæli Trent vekja nú athygli – Nefndi manninn sem er orðaður við Liverpool í dag

Gömul ummæli Trent vekja nú athygli – Nefndi manninn sem er orðaður við Liverpool í dag
433Sport
Í gær

Sjáðu nýjar EM-treyjur Íslands – Úr endurunnu hráefni og sækja innblástur í hreyfingar Norðurljósanna

Sjáðu nýjar EM-treyjur Íslands – Úr endurunnu hráefni og sækja innblástur í hreyfingar Norðurljósanna
433Sport
Í gær

Kynlífsmyndband fór í dreifingu frá stað sem margir Íslendingar kannast við

Kynlífsmyndband fór í dreifingu frá stað sem margir Íslendingar kannast við
433Sport
Í gær

Wirtz áfram efstur á lista City þrátt fyrir fréttir vikunnar

Wirtz áfram efstur á lista City þrátt fyrir fréttir vikunnar
433Sport
Í gær

Bakvörður sem Liverpool vill fæst ódýrt í sumar

Bakvörður sem Liverpool vill fæst ódýrt í sumar